Náđi 12 réttum!!!
En svo sá ég hvað það hefði gefið, og gat ekki annað en hlegið. Ég var greinilega ekki ein um að skora svona hátt, 12 réttir gáfu heilar 300 krónur, og 13 réttir um 8000kr. Bottom line er að þessi 12 á eftir að koma sér vel í leiknum seinna meir.
Fyrir þá sem fatta ekkert um hvað ég er að tala, þá var Haustleikur KR-Getrauna að byrja um seinustu helgi, hef stundað þetta í nokkur ár, fyrst með Göggu frænku, en svo með Lofti bróður, alveg þangað til í fyrravor þegar hann nennti þessu ekki, þá fékk ég Mumma með mér í þetta. Vegna misskilnings fengum við ekki nafnið sem við vildum þá, vorum bara með gamla nafnið okkar Lofts. En núna held ég alveg öruglega að við höfum fengið það í gegn. Þetta verður gaman.
Myndir eru væntanlegar, ég var of depressed yfir úrslitunum til að nenna að skrifa eitthvað um þetta. Svo eru peysurnar alveg að detta inn, langar svo í nýju fínu peysurnar mínar og bolina..:)
Líf mitt í myndum
Í staðin fyrir þetta:

leið mér meira svona í allt sumar:

besta myndin sem ég fann, basically maður sat í bílnum hálfan daginn með rúðuna niður og slappaði af.
Samt nóg af óþarfa drama í vinnunni sem ég nenni ekki að fara útí hérna.
Eftir að vinnu sleppti í sumar var tekin smá törn í svona:


Haust:

6. bekkur er það heillin, gamla stofan hans Lofts síðan í fyrra (og Mumma funny enough) Eimskip.
25.-28. ágúst







Æðislegt, upplifun, frábært frá A til Ö. Þetta er bara myndaúrvalið, tók m.a. upp fluttninginn á Paint it black, gæti ratað á YouTube við tækifæri
Framundan:
5. okt.
>>>>>>>>mr dagurinn. (myndir væntanlegar frá undirbúningi í næstu viku)17.-23. okt.

þaðan er ferðinni heitið til

"litlu" borgarinnar Jacksonville í Florida.
Alltaf lærir maður eitthvað nýtt, því hin "litla" Jacksonville er víst þriðja fjölmennasta borgin við austurströnd USA skv. Wikipedia, með um 800.000 íbúa í borgarsvæðinu sjálfu. Ég held því samt áfram fram að þetta sé bölvað krummaskurð, ekkert við að vera þarna nema fyrir bróður minn að uppfylla drauminn og sjá sína menn í Jacksonville Jaguars keppa í amerískum fótbolta. Og auðvitað förum við með, mig langar líka að sjá leik, mínir menn í New York Jets þurfa að bíða eftir mér aðeins lengur, en ætla ég á leik með þeim someday? Ójá!
Og við erum nánast búin að fullkomna það að fara með mömmu á íþróttaleiki í þessum helstu íþróttum, fótbolti á Englandi x3, fótbolti á Spáni x1, körfubolti í USA x2, og nú amerískur fótbolti x1. Þarf bara að koma henni á hokkí- og hafnaboltaleik, og þá er þetta nokkurnvegin komið :)
Læt þetta duga, koma öruglega einhverjar myndir fá öllu VÍ-mr stússinu, ætla að mæta með mína myndavél í skólann og eiga einhverjar myndir sjálf, ofan á það sem Ljóska tekur.
The Lazy Blogger Returns...og P.S. yfirmenn Sýnar eru hálfvitar..
Dvölin mín í KÖBEN var mjög ánægjuleg, mjög gaman að hafa drifið mig í að vera þarna úti áður en þau skötuhjú flytja heim. Sé alls ekki eftir þessu, ég gat slakað vel á fyrir komandi stress (stóri markaðsfræðifyrirlesturinn, skil og próf á próf ofan, og svo lokaprófin sem eru í gangi núna)
Eitt sem ég nefndi ekki í fyrri færslum í/eftir kosningavikuna, en það er ótrúleg óheppni hennar mömmu minnar. Við erum í þessum svaka endurbætum/viðbyggingum á húsinu, sem ótrúlegt nokk sér núna fyrir endan á. Mikið þarf að gera samt sem áður, og hefur mamma verið mikið að sækjast og sendast og skoða og þannig. Ekki vildi þó betur til en svo að 28.3 er mamma fyrir utan húsið að fara að færa bílin sinn svo einhver vél komist að húsinu eða eitthvað, að hún dettur um leiðslur sem liggja á planinu, og lendir svona illa á hægri hendinni. Það var þó gott að hún gat sett hendina fyrir sig, en brotnaði illa á mjög slæmum stað í úlnliðnum.
Til að gera langa sögu stutta hefur tíminn síðan þá verið mjög erfiður, nokkrum aðgerðum seinna er hún að koma til, finnur sem betur fer ekki til í þessu lengur, og brotið komið á rétta leið í batanum. Samt sem áður er óvíst með framtíðarhreyfigetu handarinnar. Það að mamma er búin að vera nánast einhennt í dálítin tíma hefur verið skrítið, ég hef t.d. þurft að reiða mig mjög á gæsku annara eða strætó til að komast staða á milli, þetta er aldeilis dæmi um að ekki á að fresta hlutum endalaust (það að mamma er búin að ætla lengi að fá sér nýjan bíl sem ég get keyrt, frekar en beinskipta bílin hennar), en ég nenni ekki að fara neitt út í þá umræðu núna, hef ekki orku í það.
Ofan á allt þetta bætist að áfram verður að halda með framkvæmdir, svo það klárist fyrir útskriftina hans Lofts 26. maí. Litla eldhúsið mitt hefur gegnt hlutverki fjölskyldueldhúsins í um mánuð núna, og hefur það gengið frábærlega. Ég ætla ekki að ljúga og segjast verða leið á að losna við þann auka umgang sem hefur verið hérna hjá mér útaf því, en þetta fylgir, what are you gonna do?
Annað sem ég ætti að nefna að ég er í Málfundafélaginu 2007-2008, og hlakkar alveg óstjórnlega þangað til starfið fer af stað einhverntíman í sumar.
Best að fara að sofa, lagði mig ekkert eftir prófið í dag, og ætla að vakna á morgun og fara til Göggu og Eia að horfa á Enska Boltann. Það er annað sem er að fara óstjórnlega í taugarnar á mér í augnablikinu, nefnilega það að Sýn verður með Boltann næsta haust (og hvað mikið lengur en það..) Fyrst hugsaði ég jibbí, að geta horft á leikina á stóra sjónvarpinu mínu, þó ég myndi sjá á eftir skemmtilegu ensku lýsingunum sem eru á leikjunum á hliðarrásum á SkjáSporti. En rosalega var ég sannfærð um að Sýn myndi gera vel og halda í þetta sem ég myndi kalla vana núna, að sýna alla leiki helgarinnar.
En NE-EI, þeir eru BARA að kaupa þetta til að fara aftur í gamla formið, og ss. að kaupa þetta til að halda þessu frá öðrum aðilum sem eru loksins að stuðla að einhverri ÞRÓUN! Einn leikur á viku er einfaldlega ekki nógu gott lengur! Og til að bæta gráu ofaná svart ætla þeir að halda í sýningarréttin á NFL, OG SÝNA SVO ENGA LEIKI!!! HOW STUPID IS THAT? Bara til að koma í veg fyrir auðgun íþróttaflórunnar í íslensku sjónvarpi, nei, þá á að hrúga þessu öllu á eina stöð! Og þeir DIRFAST síðan að kalla sig stærstu íþróttastöð landsins, bara af því að þeir eiga réttin að hinu og þessu...Urrg..
The results are in...
Ég tapaði, en svona naumum mun átti ég ekki beint von á. Meina, 6%, það eru 78 atkvæði, nánast það sama og álverið (Það er mál sem ég þarf að kynna mér betur þegar ég kem heim) Þá fara alltaf þessar hugsanir á flug, hefði ég getað gert eitthvað meira? Æ, ég er svosem búin að sætta mig við þetta, vona bara að Viktor standi við "loforðið" og taki mig inn í nefndina, þá get ég þó gert eitthvað af því sem mig langar að gera. Mesta spælingin er að vera ekki í stjórn, var farin að hlakka til þess.En fyndna málið er að það skildi 1% á milli að þetta yrði hrein strákastjórn. En nýja stjórnin er sterk, maður hafði ekki mikið skap í að verafúl þarna í Berlín, þar sem sigurvegararnir rifu mann upp í kátínuna með sér.
Það var mikið stuð í Berlín, og þakka ég kærlega fyrir mig. Er núna í Berlín að slappa af hjá Mumma og Ásu. Þurfti að skrifa íslenskuritgerð í dag, gott að það er frá. Svo ætlum við Ása að horfa á prison Break á eftir, get ekki beðið. Erfitt fyrir sjónvarpssjúkling eins og mig að vera ekki heima á svona degi.
Læt þetta duga í bili.
-Maria
Kosningar..
Áhugasamir geta skoðað mitt nýstofnaða Myspace, www.myspace.com/mariakr. Og endilega, ef þú ert með Myspace, smella mér í vini.
Hef þetta ekki lengra, er að þylja ræðuna mína fyrir morgundaginn..
-Maria
1.4 1930 - 11.2 2007
Elsku amma mín dáin.
Veit ekki alveg hvað ég á að segja, tilfiningarnar eru enþá á fullu, ræð ekki alveg við mig í augnablikinu. Þetta er erfitt, eina stundina er verið að huga að næsta skrefi, og svo fáum við þetta símtal, og hún deyr stuttu síðar. Ég var hjá henni þegar hún dó, hélt í höndina á henni, sem ég er þakklát fyrir, en jafnframt er það erfitt líka á sinn hátt. En vonandi vissi hún af mér..
Held að þetta lag segi allt sem ég vil segja, hef hlustað á í nokkur ár og það á einhvernvegin svo vel við núna..
You gave us some place to go.
I never said thank you for that.
I thought I might get one more chance.
What would you think of me now,
so lucky, so strong, so proud?
I never said thank you for that,
now I'll never have a chance.
May angels lead you in.
Hear you me my friends.
On sleepless roads the sleepless go.
May angels lead you in.
So what would you think of me now,
so lucky, so strong, so proud?
I never said thank you for that,
now I'll never have a chance.
May angels lead you in.
Hear you me my friends.
On sleepless roads the sleepless go.
May angels lead you in.
May angels lead you in.
May angels lead you in.
And if you were with me tonight,
I'd sing to you just one more time.
A song for a heart so big,
God wouldn't let it live.
May angels lead you in.
Hear you me my friends.
On sleepless roads the sleepless go.
May angels lead you in.
May angels lead you in.
Hear you me my friends.
On sleepless roads the sleepless go.
May angels lead you in.
May angels lead you in.
Nýr fítus
Og þá datt mér í hug þessi hugmynd að Grey's Anatomy Spilaranum, þegar ég var að hlusta á lag úr þáttunum, sem var á playlista með því sem virtist öll tónlistin úr 1. og 2. seríu. En þarf að salta þá hugmynd þangað til ég veit hvort það er hægt að setja heila playlista á síðuna, ekki bara stök lög. Ætla að þessu tilefni að starta öðrum fítus í hans stað, nefnilega Lag Mánaðarins!
Brilliant, no? Kannski breytist það í Lag stundarinnar, mín tónlistahlustun er svo ör. Að þessu sinni vel ég lagið Spun með Flypside. Ein af þessum fundum mínum, hlusta einnig á lagið Train með þeim, en Spun rataði ég á út frá leit að því lagi.
Enjoy!
Diskur í viđgerđ..
Ísland vann sumsé Evrópumeistara Frakka í handbolta núna fyrr í dag, 32-24. ÞVÍLÍKT OG ANNAÐ EINS SNILLDARVERK var spil Íslendinganna, þeir einfaldlega komu inn í leikinn eins og þeir ættu engu að tapa, sem var rétt, og dómíneruðu hann svo algerlega. Ég skemmti mér konunglega með hinu fólkinu í Rauða Sal, þar var sko stemmarinn. Fer þangað aftur að horfa á næsta leik pottó..
Að leiðinlegri fréttum í mínum augum, annar harði diskurinn sem ég á er við það að gefa upp öndina eða svo virðist, vonandi ekki samt, hann er allavega með mikil leiðindi við mig núna. Ætla með hann í viðgerð á morgun, krosslagðir fingur hér á bæ..
Prison Break í nótt, vaka eða vaka ekki? Það er spurningin, ætla að reyna, vonandi er hann bara fljótur að koma..
Mbl.is eitthvađ úti ađ aka..
Eftir þessa byrjun á deginum tók við lærdómur í skólanum fyrir markaðsfræðipróf sem ég hafði varla náð að læra undir sökum téðs fyrirlesturs, en það reddaðist allt saman, mér gekk bara nokkuð vel, held samt að þetta kvef sem ég nældi mér í hafi ruglað mig eitthvað, því fátíður atburður gerðist, ég var seinust út úr prófinu! Óþægilegt fannst mér, ég skildi ekket af hverju allir voru að labba út, held að ég hafi gefið aðeins of detailed svar við einni spurningu sem orsakaði töfina..
Svo var fyrirlesturinn fluttur, og fékk ég mikið lófatak frá Benna og Boða og co. þessir snillingar. Ég er bara nokkuð ánægð með daginn hingaðtil. Ég ætla að skella mér upp í skóla að horfa á Ísland-Frakkland, maður verður að halda í vonina og styðja strákanna. SPUR keppni á morgun, og svo MORFÍS keppni (Verzló - FB) á fimmtudag, í Bláa Sal okkar Verzlinga. Ég þar með mína heimagerðu trommu og (vonandi) kveflaus tilbúin að öskra úr mér lungun að gömlum sið.
En að aðal "pointinu" með þessu bloggi, nefnilega frétt sem ég rak augun í á mbl.is: (http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1248655#) Tek bara útdrátt hingað..
Veröld/Fólk | mbl.is | 22.1.2007 | 15:38
Roger Daltrey leikur blökkukonu í CSI
"Söngvari bresku rokkhljómsveitarinnar The Who Roger Daltrey eyddi mörgum klukkutímum á dögunum í förðunarstól til þess að undirbúa sig fyrir hlutverk í þáttunum CSI: Crime Scene Investigation. Ástæðan er sú að hann mun leika miðaldra bandaríska blökkukonu.
Blökkukonan er þó aðeins eitt dulargerva mafíuforingjans og meistara dulargervisins, Mickey Dunn, sem Daltrey leikur. Hann mun jafnframt fara í gervi spænsks sjómanns og karíókísöngvara."
Þar sem ég er nú mikill CSI aðdáandi gat ég ekki annað en rekið upp stór augu og hlegið að þessari mjög svo frjálslegu notkun á orðasambandinu "á dögunum" Þannig er nefnilega mál með vexti að umræddur þáttur, 709 - Living Legend, var ekkert tekinn upp á dögunum, hann var sýndur úti 23. nóv. 2006, og tekinn upp nokkru áður.
Ég veit ekki með aðra, en fyrir mér er 2 mánuðir+ ekki það sem ég myndi kalla "á dögunum". Frekar "fyrir nokkru" eða álíka.
---
Mummi að fara aftur út á laugardagsmorgun, en ég fæ að hafa hann hjá mér hérna á svefnsófanum hennar mömmu sem er tímabundið í stofunni minni í tvær nætur. Svo þegar hann kemur heim í vor býr hann barasta ekki hérna heima lengur. Ég hef nefnt þetta í bloggi áður og alltaf minnist ég á það hversu illa mér er við breytingar..
En nóg um það, þetta er nóg í bili.
Fyrir þá sem vilja fylgjast með þeim æsingi sem atburðir tölvutíma @ (hjá) 5-A eru geta kíkt inn á hið mjög svo innblásna skyldublog mitt á http://atlas.verslo.is/markri (eða tekið út markri og setjið inn skammstöfun bekkjarfélaga að eigin vali)The eve of the big move..
Var bara að fatta þáð núna fyrir mínútu síðan að ég hef verið í þessu herbergi síðan við fluttum hingað...16 ár, það er sko langur tími, vert að líta yfir farinn veg..
Fyrst var það í rimlarúmi með Loft hérna rétt hjá, rimlunum var snarlega kippt af hans rúmi og búin til svona skemmtileg hurð á mitt eftir að hann hafði náð að ýta sínu rúmi til mín eitt kvöldið, og klifrað yfir. Hérna kippti ég snuðið mitt, og gerði svo seinna um kvöldið þá uppgötvun að "ég hafi gert hræðileg mistök" (quote-a í sjálfa mig hérna) Kojurnar eru líka í góðu minni enþá, á þessari hörmulegu svampdýnu..
Svo flutti Mummi út í íbúð, Loftur fór í herbergið hans, og ég fékk þetta útaf fyrir mig. Tók eitthvað óútskýranlegt kast og vildi mála einn vegg APPELSÍNUGULAN, sem betur fer var hann lengst af hulinn skáp..Var svo nokkrum árum síðar í stuttan tíma í Lofts herbergi þegar ég fótbrotnaði, hann kominn með þetta himnasælurúm, sem var sko allt annað en gamla vonda svampdýnan. Enda stóð ég uppi með eitt stykki í fermingargjöf, og sef enþá eins og ungabarn í dag.
Við tekur samt nokkuð svipað herbergi að stærð, þó með langtum betri fataskáp en sá sem ég er með núna, hann fylltist líka mjög fljótt og hef ég oft lent í stökustu vandræðum með hann..Það er reyndar líka allt í þessum skemmtilega græna lit sem ég valdi, tónar mjög vel við gardínurnar og rúmið mitt. Allt mjög úthugsað í þetta skiptið. Svo er stofuplássið til, sjónvarpið komið upp á vegg (endaði á Toshiba tækinu fyrir þá sem vilja vita), sófinn æðislegi kemur á morgun, vona að skrifborðið verði sett aftur upp á morgun, og glerskápurinn verður sýnilegri, ekki bara block á appelsínugula vegginn. Eldhúsið er ekki komið enþá, en það verður svo flott..get varla beðið..Baðherbergið er orðið svona rosalega flott..get varla beðið..Kveð gamla herbergið samt með miklum söknuði..minningarnar..
Við skreyttum aldeilis í dag, jólatréð er orðið æðislegt að vanda. Fór líka til ömmu og skreytti hennar litla tré, það var gaman. Jóaskapið sannarlega komið á fullt aftur.
Morgundagurinn verður crazy..flutningur, jólagjafakaup, jólafatakaup..úff..
Og Baldvin: Bókað! Kemur bara um leið, gæti meiraðsegja boðið þér í mat eftirá.
Er að hlusta á: Full Blown Rose - The Longest Day og Anything You Want

